Voir le contenu
Verkstæði

CITROËN VERKSTÆÐI

Við leggjum áherslu á að þjónusta viðskiptavini okkar á framúrskarandi hátt á öllum sviðum svo samgöngutæki heimilisins og vinnustaðarins sé í topplagi. Öll verkstæði Brimborgar eru aðilar BGS, Bílgreinasambandsins.

 

Bókaðu tíma á verkstæðum Citroën á netinu - Við erum á þremur stöðum

Bókaðu tíma núna

Þú getur pantað tíma á verkstæðum Citroën hér á vefnum. Í samstarfi við Vélaland verkstæði getur þú nú bókað tíma nálægt þér. Við erum á þremur stöðum: Citroën verkstæði Bíldshöfða 8, Vélaland verkstæði Jafnaseli 6 í Breiðholti og Vélaland verkstæði Dalshrauni 5 Hafnarfirði.

 

Þegar þú hefur bókað tíma þá færð þú mjög fljótlega staðfestingu í sms með nánari leiðbeiningum. Síðan munum við minna þig á tímann fjórum dögum áður en þú átt að mæta og aftur minnum við á daginn áður. Þú finnur lausan tíma, bókar tíma eða afbókar hjá verkstæði Citroën hér:

 

UM CITROËN VERKSTÆÐI

Citroën verkstæði Brimborgar státar af fjölda faglærðra bifvélavirkja sem hafa áratuga reynslu af viðgerðum á Citroën bílum. Bifvélavirkjar Citroën verkstæða Brimborgar fá reglulega þjálfun í nýjustu bíltækni og tryggja að bíllinn þinn sé ávallt í topp standi. Góð þjálfun og reynsla í viðgerðum á Citroën skilar sér í lægri viðgerðarkostnaði því viðgerðin gengur hraðar fyrir sig. Viðgerðir á Citroën verkstæðum Brimborgar eru með 2 ára lögbundinni ábyrgð.

 

Citroën bílar eru framleiddir af Stellantis, einum stærsta bílaframleiðanda Evrópu.

 

Neyðarþjónusta verkstæðis og varahlutaverslunar kostar kr. 25.000 fyrir hvert útkall og er útkallskostnaður til viðbótar við kostnað sem hugsanlega fellur til vegna viðgerðar og varahluta. Neyðarþjónusta er hugsuð fyrir viðskiptavini sem lenda óvænt í því að bíllinn bilar en þurfa nauðsynlega á viðgerð að halda utan opnunartíma.

 

Neyðarsími Citroën fólksbíla er 8941515.

 

Verkstæði utan höfuðborgarsvæðisins

Þjónustuaðilar, verkstæði sem þjónusta bílamerki Brimborgar, eru víða um land og veita góða þjónustu í samræmi við kröfur Brimborgar.