Smelltu á flokk

Citroën frétt 

19. maí 2012
Citroën | fim. 28. jan. 2010

Citroën DS3 fær góða dóma hjá Autocar

Það er hægt að sérsníða Citroën DS3 að þörfum hvers og eins eins og sönnum lúxusbíl sæmir.
Citroën hefur tekið djarft skref og ákveðið að bjóða nýstárlega hönnun sína í minni bílum, með flestum þeim lúxus sem tilheyrir mest spennandi bílum Citroën. Tegundarheiti bílanna verður DS sem er vísun í einn þekktasta bíl franska framleiðandans, Citroën DS – eða gyðjuna eins og hún var stundum kölluð.

Spennandi hönnun

Bíllinn sem Autocar reynsluók var af gerðinni Citroën DS3 1.6 THP Dsport sem er öflugasta útgáfa bílsins. Vélin skartar 154 hestöflum og skilar hún bílnum í 100 km/klst á aðeins 7,3 sekúndum.

Merkilegt nokk er það þó ekki vélin sem er aðal aðdráttarafl bílsins heldur er það óvenjuleg og spennandi hönnun hans en Citroën þykir hafa sýnt mikið þor með því að feta aðrar slóðir en helstu keppinautarnir; Mini, Fiat 500 og Alfa Romeo Mito sem allir státa af hönnun sem flestir myndu kalla „retro-lega“, þ.e. hún er afturhvarf til fortíðar.

DS3 þykir nútímalegur og fersk hönnunin sýnir bæði kraftalegar línur, í bland við sérstök smáatriði eins og fljótandi þakið (svartir gluggastólpar og þak er fáanlegt sem aukabúnaður og minnir á blæjubíl) og óvenjulega notkun glers og lita. Að innan eru glæsilegar og framúrstefnulegar innréttingar þar sem mikil áhersla er lögð á efnisval og gæðatilfinningu.

Sem dæmi um þetta má nefna sérhannaða fjöðrun bílsins sem á að vera sportleg og hljóðlát í senn. Einnig hefur mikið verið lagt í hljóðeinangrun bílsins sem er afar sjaldgæft í bíl í þessum stærðarflokki.

Fullfær og fer nýjar leiðir

Autocar segir Citroën DS3 vera góðan pakka þar sem tekist hafi að ná hæfilegri blöndu lúxus og sportlegra eiginleika án þess að það gerist á kostnað hagkvæmnissjónarmiða. Þannig hefur tekist að hanna bíl sem tekur erfiðan slag á eigin forsendum og stendur uppi sem virkilega góð vara og freistandi.
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli